Tímalína 1923 - 1948 - Ævi og störf Guðmundar og Sigríðar
Flutt í Verkamannaskýlið
1923
Guðmundur sækir um og fær stöðu
UMSJÓNAR- OG VEITINGAMANS Í VERKAMANNASKÝLINU í Reykjavík.
Sigríður og Guðmundur flytja með 6 börn á aldrinum 1 til 16 ára, inn í "íbúð" í eystri enda Verkamannaskýlisins: eina litla stofu og eldhús á neðir hæð og eitt herbergi á efri hæð,.
KJÖR:
Guðmundur þarf að starfa eftir ýtalegu erindirbréfi.
,,Umsjónarmaður fær fyrir starfa sinn leigulausa íbúð í húsinu, stofu og eldhús niðri, svefnherbergi og geymslu uppi, og svo ókeypis ljós og hita, en sjálfur leggur hann til efni til ræstingar í skýlinu."
Arður af veitingassölu sem þó er háður eftirliti skýlisnefndar.
Salerni skulu opin fyrir almenning frá klukkan hálf sex á morgnanna til 10 á kvöldin. Eftir hverja notkun salernis skal setan þvegin og sótthreynsluð. Fyrir afnot salernis skal greiða 10 aura. Þetta gerði í raun kröfu til þess að þarna varð að vera starfsmaður sem Guðmundur þurfti að launa.
Þessi mynd er líklega tekin seint á árinu 1924.
1924
Héðin Valdimarsson fyrir hönd fulltrúaráðs verkalýðsfélagana, sendir Borgarstjóranum í Reykjavík beiðni um að Kvöldskóli Verkamanna fái inni í Verkamannaskýlinu leigulaust og er það veitt og var skólinn þar um veturinn 24-25 þrjár stundir á kvöldi.
1925
Fædd Sigurmunda 20. jún.
1926
Fædd Halldóra 13. des
Sigríður er stofnfélagi og aðstoðarritari í fyrstu stjórn Systrafélagsins Alfa
1928
KJÖR:
Arður af sölu hefur nú dregist verulega saman vegna þess að Mjólkursamsalan hefur opnað verslun við höfnina og selur þar vörur á sama verði og Guðmundi býðst til endursölu í skýlinu.
Eftir að hafa skrifað Borgarstjóra bréf með óskum um bætt kjör og viðhald á skýlinu fær hann fasta greiðslu 50 kr. á mánuði úr bæjarsjóði. Jafnvirði launa verkamanns fyrir 42 klst. Ekkert er hugað að viðhaldi á húsnæðinu.
1930
Skráning atvinnulausra fer fram í Verkamannaskýlinu
1933KJÖR:
Íbúðin er nú talin óíbúðarhæft af trúnaðarlækni.
Arður af sölu sem er orðin mjög lítill.
Guðmundur fær nú 125 kr.á mánuði úr bæjarsjóði. Jafnvirði launa verkamanns fyrir 92 klst.
1934Kjör
Arður af veitingasölu er orðin afar rýr.
Guðmundur fær nú 200 kr.á mánuði. Jafnvirði launa verkamanns fyrir 147 klst.
1935
Andast Guðrún Jónína 23. jan.
1936
Pourquoi-Pas ferst.
1939
Heimsstyrjöldin síðari hefst 1. sept. með innrás Þjóðverja í Pólland.
1940Kjör:
Enn er nær enginn arður af veitingasölunni en Guðmundur fær nú 200 kr. á mánuði sem
er jafnvirði 111 kl.st vinnu verkamanns. Opnunartími er óbreyttur og enn sem fyrr verður Guðmundur að hafa mann í vinnu við vörslu á salernunum en aðgangurinn kostar enn 10 aura. Ekkert bólar á viðhaldi á húsinu.
1945
1947Kjör:
Miklar verðlagsbreytingar hafa átt sér stað yfir stríðsárin. Guðmundur fær nú greiddar 200 kr á mánuði + 60 kr. verðlagsuppbót. Jafnvirði launa verkamanns í 29 klukkustundir.
Sláðu hér til að halda áfram á tímalínunni.